Því ver og miður er ég ekki búin að vera dugleg að blogga hérna, skil það ekki þar sem ég var svo dugleg að blogga síðast þegar ég fór í átak.
En allvega. Ég var að komast að því í þessum töluðum orðum að átakið mitt er búið að vera í 14 vikur. Finnst ótrúlegt að það séu komnar svona margar vikur og ég sem var bara að byrja í gær, hehe.
Ég var að skoða Er.is og eins og oft kemur átak upp og fólk að monta sig af árangrinum (sem er frábært) en þegar maður er búin að vera að skoða hjá öðrum fattar mar að maður hefur ekki verið duglegur að skoða sjálfan sig. Svo að ég setti mig í stellingarnar og ákvað að kíka bara yfir webcam myndirnar og fann 1 mynd sem ég tók rétt áður en ég byrjaði í átakiu og svo aðra mynd á svipuðum stað í svipaðri stellingu síðan í júlí. Ef ég er búin að reikna það rétt þá ætti ég að vera búin að missa um 10 kg og get svo svarið það að það er óhætt að segja að það sé mikill munur á þessum myndum. Fyrr myndin er ég eitthvað svo bólgin og ómöguleg eitthvað. En aðeins léttari á hinni, hehe. Maður verður að vera duglegur að taka myndir af sér þegar maður er í átakinu og þá er ég að meina þannig myndir að mar er ekki að reyna að fela undirhökuna eða ýta maganum inn… þið vitið alveg hvað ég er að meina ekki satt.
Ég er búin að vera að fá svoldið af hrósum núna. Fólk farið að taka eftir því að maður er að minka. Var bara í búð í dag og hitti eina sem ég er ekki búin að hitta lengi og hún var bara næstum orðlaus. Svo reynir mar að vera voðalega hóvær… já mar er svona að reyna að taka sig á ( er svo sveittur heima yfir þessu öllu sama og býður eftir að einhver fari nú að segja að árangurinn sé farin að sjást haha) Ég er aðeins að flippa á blogginu núna hihi.
Annars langaði mig bara að skella inn einni færslu. Svo er bara vigtun á fimmtud. Er reyndar ekkert búin að vera á danska í mánuð, bara passa mig hvað ég er að borða og ekki mikið í einu. Átti ekki von á að geta það miða við fyrir tilraunir. Hef alveg leyft mig smá óholt en mjög svo í hófi og eins mjööög lítð í einu. Þó að ég sé ekki búin að vera dugleg að skrifa hér inn hef ég samt verið að skella inn vigtinni og eins er ég búin að uppfæra málbandið hjá mér. Er virkilega sátt við það líka. Það er bara allt að minka hægt og rólega 
Jæja, ætla ekki að hafa það lengra í bili.
jú eitt… finnst eins og fólk sé aðeins að rugla okkur saman hér.
Svo að ég er að spá í að skíra mig upp á nýtt
hvað á konan að heita……. Miss lady
Farið vel með ykkur, mínir kæru lesendur
The lady is out