Sarpur fyrir júní, 2008

Vigtunardagur (Jelly)

Posted in vigtun, Átak on júní 30, 2008 by Miss lady

Jebb það er kominn 3 vigtunardagurinn… er freeeeekar ósátt við þennan dag. Bætti á mig 300 gr. Sem ég er ekki alveg að skilja, en verðum bara að lýta á björtu hliðarnar og segja að í staðin verður meiri létting næst. Gæti reyndar trúað að ástæðan sé að maður er búin að vera rosalega duglegur í ræktinni og að líkaminn sé bara að aðlagast þessu öllu saman. Var samt ekki svo mikið vör við það 2006 en svona er þetta bara.

Nú er bara að reyna þetta betur og sjá hvað gerst eftir viku. Er reyndar að spá í að skipta um vigtunardag en það kemur þá bara í ljós þegar að því verður.

Vonandi gengur ykkur hinum vel

Ummálsmælingar

Posted in Átak on júní 27, 2008 by Jolly

Í gær átti ég  að mæla mig hátt og lágt en kom mér einhvern veginn ekki í það en skellti mér inn á baðherbergi áðan og úr öllu til að mæla mig hátt og lágt og passa að málbandið sæti rétt og allt svoleiðis. Ég gæti ekki látið einhvern sem ég þekki mæla mig því ég myndi örugglega draga aðeins inn magann og svona svo viðkomandi myndi ekki sjá alla cm hihi þess vegna hjálpumst við spegillinn að ásamt aðal gripnum málbandinu ;) En samtals fóru s.s. 44cm af YES! er himinlifandi en þetta eru  náttúrlega margir staðir samanlagðir ætla að henda inn hér hvað fór af hverjum stað ;) set það svo hér til hliðar við tækifæri ítarlegra.

Kálfar -1cm af hvorum =-2 cm

efst á lærunum -2,5cm H -1,5 cm V =-4cm

mið læri -3cm H -2,5 cm V =-5,5 cm

ofan hné-2,5cmH -2cmV=-4,5cm

rass/mjaðmir=-4,5

nafli=-9cm

mitti =-4cm

upphandleggir -2,5H -2,5V=5cm

úlnliðir -0,5H -0,5V=1cm

Háls=-0,5cm

undir brjóstum -4 cm

Ég mældi brjóstin ekki í upphafi en gerði það núna svo það kemur næst. Lærin eru orðin jafnari en það munaði 2 cm t.d. efst á lærunum en munar einum núna. Er með mest af aukaforðanum á maganum svo það er ekkert skrítið að það fór svona mikið þar vona að það haldi áfram;) svæðið sem fer mest í pirrurnar á mér um þessar mundir er björgunarhringurinn;)

Bestu kveðjur

Jolly í skýjunum

Út með kílóin leyfum þeim að fjúka:p

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júní 26, 2008 by Jolly

Hó hæ, sátt við þessa viku þrátt fyrir ferðalag og því sem því fylgir;) var komin e-ð aðeins upp eftir helgarferðina en tók bara hressilega á því í ræktinni mán, þri, mið og fór út að hjóla á mán og þri kvöld slatta af km;) Það fór s.s. 1kg frá síðustu vigtun markmið þessarar viku var 500gr svo það er ekki hægt að vera annað en sátt!Nú eru 2,8 kg eftir í 10 kg af ég setti mér markmið að þau væru farin 31.júlí en vonast eftir að klára þau fyrr, sjáum hvað gerist:) Jæja verður ekki langt að þessu sinni….

Njótið blíðviðursins :)

Jolly

Vigtun 2 >Jelly<

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júní 23, 2008 by Miss lady

Jæja þá er önnur vikan búin. Þetta getur verið ágætlega fljótt að líða allt saman.

Það var s.s vigtun í morgun og fóru 1.3 kg þessa vikuna. Bjóst reyndar ekki við svo miklu en auðvitað er maður ánægður með það allt saman. Nú er ég búin að missa 4 kg. Sem er bara mega gott en ekki hvað.

Við Jolly erum líka búinar að vera frekar duglegar í ræktini. Byrjuðum s.s í síðustu viku. Kanski verst við hana að það er lokað um helgar. En maður verður þá bara að fara út að labba eða eitthvað í staðin.

Lenti reyndar í skemmtilegur atviki eða hitt og um helgina. Var að taka til hérna heima og sparkaði í Trip Trap stólinn hjá barninu og auðvitað var það ekki gott. Svo nóttina fór ég að finna fyrir tánni. Er búin að vera að drepast í henni. Held að ég hafi náð að bráka hana :S. Ákvað því að fara ekkert í ræktina í dag. Var nógu erfitt að labba í gær í vinnunni. Vonandi verður hún orðin ágæt á morgun samt.

Hef það ekki lengra í dag
gangi ykkur vel

Blóð, sviti og tár!?!

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júní 19, 2008 by Jolly

Nei kannski ekki alveg, ekkert blóð en smá meiðsli, sviti mikið af honum en ekki tár heldur smá svekkelsi:p

 
Í dag er vigtunardagur hjá mér ég hefði kannski kosið að hafa hann síðastliðinn laugardag þá var ég búin að missa 1 kg og var úper, súper ánægð:) en svo fór ég út að hlaupa á fótboltavellinum 15.júní náði heilum hring en gekk svo nokkra hringi með Jelly eða samtals rétt rúmlega 6km. Daginn eftir rukum við og keyptum okkur kort í ræktina krafturinn kominn í okkur og viljinn til að verða GRANNAR:)! Það kom mér reyndar bara á óvart hvað ég gat hlupið á bretti þrátt fyrir langt hlé frá ræktinni:) en ákvað að vera ekkert að sprengja mig og hljóp 2 mín og gekk 2 mín til skiptis fórum líka á krossarann í 10 mín. Ég hjólaði svo smá seinni partinn úti.

Þriðjudaginn 17.júní var tekinn langur göngutúr svo var einnig skellt sér út að hjóla með elsta barninu fyrir kvöldmat (auka matarlistina) Já reyndar var einnig hjólað fyrir hádegið. meiðslin komu s.s. þarna á 17.júní ég var ekki á góðum skóm til að labba á held ég hljóti að hafa stigið e-ð asnalega á svona steinabreiðu með grjótum sem við urðum að labba yfir….:S

Miðvikudaginn var svo skellt sér í ræktina í rúma klst vorum bara tvær í salnum svo þar voru gerðar ýmsar kúnstir og hlegið mikið enda fannst mér ég bara nýkomin þegar ég þurfti að fara;) meiðslin aftur á móti í fætinum voru orðin mjög slæm og ég haltraði heim en ég fann ekkert fyrir þeim meðan ég var í íþr.skónnum eins og skórinn hafi veitt stuðning.

Já þá erum við búin með meiðslin og svitann og komum betur inn á svekkelsið :p það var s.s.farið kg af áður en hreyfingin hófst og maður veit alveg að maður getur þyngst eftir að maður byrjar að púla það gerðist hjá mér en er farið að leka aftur af þannig ég er kannski ekkert úper svekkt það fóru 400 grömm af þessa vikuna og þori ég að veðja að í fyrramálið verður það meira útaf þá er ekki vigtunardagur:p Ég er s.s. búin að missa á 6vikum 6,2kg

En annars er ég búin að standa mig vel í mataræðinu og hef staðist freystingarnar sem hafa komið ahhh nema ég leyfði mér að fá mér lítinn ís í brauðformi á 17.júní sem mér finnst nú allt í lagi fæ mér alveg e-ð óhollt annað slagið þegar þannig stendur á en ætla ekkert að missa mig í sukki og er ekkert að fara að fá mér reglulega e-ð óhollt…

Jæja þetta er orðin meiri langlokan hjá mér ;)

Sólarkveðjur Jolly og aðeins 3,8 kg í að 10 kg múrinn falli

Vigtun í dag (jelly)

Posted in vigtun, Átak on júní 16, 2008 by Miss lady

Jebb…. það er komin mánudagur og við vitum hvað það þýðir…… VIGTUN… reyndar ekki það skemmtilegasta sko. En fínar tölu. Er búin að missa 2.7 kg þessa vikuna. Er bara mjög ánægð með það. Svo er bara að krossa putta og vona að það gangi vel áfram. Miki skemmtilegra að vera undir 110 en yfir. En mun skemmtilegra að vera undir 3ja stafatölu samt hehe

En nú ætla ég að fá mér að borða áður en maginn klárar sjálfan sig :p

Smá blogg :p >Jelly<

Posted in Hreyfing, Átak on júní 15, 2008 by Miss lady

Jæja, er að spá í að senda inn eitt blogg eða svo.

Nú er ég búin að vera á DDV í viku og hefur gengið ágætlega myndi ég segja. Fékk mér smá nammi á föstudagskvöld, en var búin að ákveða að það væri í lagi að fá sér nammi 1x í viku en ekkert must.

Okkur var boðið á KFC á föstudaginn, kallinn hringdi í mig þar sem ég var í Rvík. Ég sagðist ekki viljað fara en þau gætu farið. Var ekkert smá stolt af sjálfri mér. Hafi meira áhuga að fá mér Burritos heima, enda finnst mér það miki betra :p naut þess að eta ein heima og horfa á granna, hehe

Annars var ég að koma heim úr góðum göngutúr. Jolly náði að draga mig út. Ekki í fyrsta sinn né síðasta. Við löbbuðum alveg 6 km, fínt að vera með skrefmælir í skónum. Skal alveg viðurkenna að ég var ekki alveg að nenna en skellti mér svo. Svo er að málið að fara í vikunni og kaupa kort í ræktina er alveg farin að finna að mig vantar að komast þangað.

Er líka mjög dugleg að skoða aðra bloggsíður svona til að halda manni við efnið eins gömlu síðuna líka. Grátlegt að sjá gamlar tölur og vera byrjaður upp á nýtt, en er ekki hægt að segja að það sé betra að vera að byrja aftur heldur en að gefast upp? ég held það bara.

Á morgun er viktunardagur, held að hann verði bara ágætur. Enda missir mar alltaf mest fyrstu vikuna. Vona að ég nái svo að vera í kringum kg eins og síðast.

Held ég hafi þetta ekki lengra í bili.

Þar til næst
Hafið það gott
Jelly

Fyrsta færsla Jolly=)

Posted in vigtun, Átak on júní 12, 2008 by Jolly

Jæja þá ætla ég að vígja þetta blogg af minni hálfu ;)

Ég er semsagt Jolly og er dörtýone(31)….

 Ég er búin að vera í átaki núna í 5 vikur, viktunardagarnir mínir eru á fimmtudögum því ég byrjaði á fimmtudegi og vikta mig vikulega eða hömmmm skrái niður þá en fer svoldið oftar á vigtina *roðn* maður verður að fylgjast með :o og ef þið vissuð það ekki þá er einmitt fimmtudagur í dag og ég var mjög sátt við vigtina í morgun nú eru farin -5,8 kg bara 200gr í 6kg! jibbýskibbý…

Ég er búin að vera að breyta mataræðinu mínu, borða hollt og reglulega á þessum 5 vikum er búið að vera frekar mikið af veislum svo ég hef alveg verið að fá mér óhollt um helgar en reynt að fá mér þá grænt te á eftir eða undan kræsingunum. Nú fer maður að bæta hreyfingu inní líka hið fyrsta þ.e.a.s. reglulegri hreyfingu.

*Fyrsta markmið verður að komast í 2 stafa tölu.

Jæja smoss á ykkur

Jolly

Fyrsta færsla

Posted in Átak on júní 11, 2008 by Miss lady

jæja, nú er að sjá hvernig þetta mun koma út allt saman. Ákvað að prufa að skella einni færslu eða svo til að sjá hvernig þetta kemur út allt saman.

Við erum 2 vinkonurnar sem ætlum að prufa að blogga svona saman og sjá hvernig það kemur út allt saman. Erum að fara að taka okkur í gegn hvað heilsu og mat varðar :p

Þar til næst, veriði góð við hvort annað ;)
Jelly