Smá blogg :p >Jelly<

Jæja, er að spá í að senda inn eitt blogg eða svo.

Nú er ég búin að vera á DDV í viku og hefur gengið ágætlega myndi ég segja. Fékk mér smá nammi á föstudagskvöld, en var búin að ákveða að það væri í lagi að fá sér nammi 1x í viku en ekkert must.

Okkur var boðið á KFC á föstudaginn, kallinn hringdi í mig þar sem ég var í Rvík. Ég sagðist ekki viljað fara en þau gætu farið. Var ekkert smá stolt af sjálfri mér. Hafi meira áhuga að fá mér Burritos heima, enda finnst mér það miki betra :p naut þess að eta ein heima og horfa á granna, hehe

Annars var ég að koma heim úr góðum göngutúr. Jolly náði að draga mig út. Ekki í fyrsta sinn né síðasta. Við löbbuðum alveg 6 km, fínt að vera með skrefmælir í skónum. Skal alveg viðurkenna að ég var ekki alveg að nenna en skellti mér svo. Svo er að málið að fara í vikunni og kaupa kort í ræktina er alveg farin að finna að mig vantar að komast þangað.

Er líka mjög dugleg að skoða aðra bloggsíður svona til að halda manni við efnið eins gömlu síðuna líka. Grátlegt að sjá gamlar tölur og vera byrjaður upp á nýtt, en er ekki hægt að segja að það sé betra að vera að byrja aftur heldur en að gefast upp? ég held það bara.

Á morgun er viktunardagur, held að hann verði bara ágætur. Enda missir mar alltaf mest fyrstu vikuna. Vona að ég nái svo að vera í kringum kg eins og síðast.

Held ég hafi þetta ekki lengra í bili.

Þar til næst
Hafið það gott
Jelly

2 svör to “Smá blogg :p >Jelly<”

  1. Jolly segir:

    Ohh gott að þú komst með mér og að þú varst ánægð eftir á ;)
    Við eigum eftir að rúlla þessu upp darling
    Komnar með nýtt upphaf á nýrri síðu…

  2. Spikbolla segir:

    Líst vel á ykkur, dömur. Það er alltaf mjög hvetjandi og áhrifaríkt að hafa einhvern með sér í átakinu. Hlakka til að fylgjast með ykkur. Og Jelly, flottur árangur eftir fyrstu vikuna! :)

Skildu eftir svar