Blóð, sviti og tár!?!
Nei kannski ekki alveg, ekkert blóð en smá meiðsli, sviti mikið af honum en ekki tár heldur smá svekkelsi:p
Í dag er vigtunardagur hjá mér ég hefði kannski kosið að hafa hann síðastliðinn laugardag þá var ég búin að missa 1 kg og var úper, súper ánægð:) en svo fór ég út að hlaupa á fótboltavellinum 15.júní náði heilum hring en gekk svo nokkra hringi með Jelly eða samtals rétt rúmlega 6km. Daginn eftir rukum við og keyptum okkur kort í ræktina krafturinn kominn í okkur og viljinn til að verða GRANNAR:)! Það kom mér reyndar bara á óvart hvað ég gat hlupið á bretti þrátt fyrir langt hlé frá ræktinni:) en ákvað að vera ekkert að sprengja mig og hljóp 2 mín og gekk 2 mín til skiptis fórum líka á krossarann í 10 mín. Ég hjólaði svo smá seinni partinn úti.
![]()
Þriðjudaginn 17.júní var tekinn langur göngutúr svo var einnig skellt sér út að hjóla með elsta barninu fyrir kvöldmat (auka matarlistina) Já reyndar var einnig hjólað fyrir hádegið. meiðslin komu s.s. þarna á 17.júní ég var ekki á góðum skóm til að labba á held ég hljóti að hafa stigið e-ð asnalega á svona steinabreiðu með grjótum sem við urðum að labba yfir….:S
Miðvikudaginn var svo skellt sér í ræktina í rúma klst vorum bara tvær í salnum svo þar voru gerðar ýmsar kúnstir og hlegið mikið enda fannst mér ég bara nýkomin þegar ég þurfti að fara;) meiðslin aftur á móti í fætinum voru orðin mjög slæm og ég haltraði heim en ég fann ekkert fyrir þeim meðan ég var í íþr.skónnum eins og skórinn hafi veitt stuðning.
Já þá erum við búin með meiðslin og svitann og komum betur inn á svekkelsið :p það var s.s.farið kg af áður en hreyfingin hófst og maður veit alveg að maður getur þyngst eftir að maður byrjar að púla það gerðist hjá mér en er farið að leka aftur af þannig ég er kannski ekkert úper svekkt það fóru 400 grömm af þessa vikuna og þori ég að veðja að í fyrramálið verður það meira útaf þá er ekki vigtunardagur:p Ég er s.s. búin að missa á 6vikum 6,2kg
En annars er ég búin að standa mig vel í mataræðinu og hef staðist freystingarnar sem hafa komið ahhh nema ég leyfði mér að fá mér lítinn ís í brauðformi á 17.júní sem mér finnst nú allt í lagi fæ mér alveg e-ð óhollt annað slagið þegar þannig stendur á en ætla ekkert að missa mig í sukki og er ekkert að fara að fá mér reglulega e-ð óhollt…
Jæja þetta er orðin meiri langlokan hjá mér
Sólarkveðjur Jolly og aðeins 3,8 kg í að 10 kg múrinn falli
júní 19, 2008 kl. 1:35 pm
Vona að fóturinn lagi sig fljótt. Ég er einmitt að glíma við blessaða fótinn á mér. Þið standið ykkur vel, dömurnar
júní 19, 2008 kl. 3:36 pm
Ohh þú ert buin að vera svooo dúleg. Við látum ekki meiðslin skemma þetta hjá okkur. Förum þá frekar hægar en að sleppa.
Sé þig í ræktinni á eftir skvíz
júní 19, 2008 kl. 3:39 pm
Takk takk,
Vona að þetta lagist sem fyrst og einni hjá þér S…
Já lét fótinn ekkert stoppa mig í gær allavega ekki í ræktinni