Vigtun 2 >Jelly<

Jæja þá er önnur vikan búin. Þetta getur verið ágætlega fljótt að líða allt saman.

Það var s.s vigtun í morgun og fóru 1.3 kg þessa vikuna. Bjóst reyndar ekki við svo miklu en auðvitað er maður ánægður með það allt saman. Nú er ég búin að missa 4 kg. Sem er bara mega gott en ekki hvað.

Við Jolly erum líka búinar að vera frekar duglegar í ræktini. Byrjuðum s.s í síðustu viku. Kanski verst við hana að það er lokað um helgar. En maður verður þá bara að fara út að labba eða eitthvað í staðin.

Lenti reyndar í skemmtilegur atviki eða hitt og um helgina. Var að taka til hérna heima og sparkaði í Trip Trap stólinn hjá barninu og auðvitað var það ekki gott. Svo nóttina fór ég að finna fyrir tánni. Er búin að vera að drepast í henni. Held að ég hafi náð að bráka hana :S. Ákvað því að fara ekkert í ræktina í dag. Var nógu erfitt að labba í gær í vinnunni. Vonandi verður hún orðin ágæt á morgun samt.

Hef það ekki lengra í dag
gangi ykkur vel

2 svör to “Vigtun 2 >Jelly<”

  1. Til hamingju með flottan árangur krúsí
    Snús á tánna! Hvað er með okkur og fæturna þessa dagana….?!?!

  2. Flottur árangur! :D

Skildu eftir svar