Ummálsmælingar
Í gær átti ég að mæla mig hátt og lágt en kom mér einhvern veginn ekki í það en skellti mér inn á baðherbergi áðan og úr öllu til að mæla mig hátt og lágt og passa að málbandið sæti rétt og allt svoleiðis. Ég gæti ekki látið einhvern sem ég þekki mæla mig því ég myndi örugglega draga aðeins inn magann og svona svo viðkomandi myndi ekki sjá alla cm hihi þess vegna hjálpumst við spegillinn að ásamt aðal gripnum málbandinu
En samtals fóru s.s. 44cm af YES! er himinlifandi en þetta eru náttúrlega margir staðir samanlagðir ætla að henda inn hér hvað fór af hverjum stað
set það svo hér til hliðar við tækifæri ítarlegra.
![]()
Kálfar -1cm af hvorum =-2 cm
efst á lærunum -2,5cm H -1,5 cm V =-4cm
mið læri -3cm H -2,5 cm V =-5,5 cm
ofan hné-2,5cmH -2cmV=-4,5cm
rass/mjaðmir=-4,5
nafli=-9cm
mitti =-4cm
upphandleggir -2,5H -2,5V=5cm
úlnliðir -0,5H -0,5V=1cm
Háls=-0,5cm
undir brjóstum -4 cm
Ég mældi brjóstin ekki í upphafi en gerði það núna svo það kemur næst. Lærin eru orðin jafnari en það munaði 2 cm t.d. efst á lærunum en munar einum núna. Er með mest af aukaforðanum á maganum svo það er ekkert skrítið að það fór svona mikið þar vona að það haldi áfram;) svæðið sem fer mest í pirrurnar á mér um þessar mundir er björgunarhringurinn;)
Bestu kveðjur
Jolly í skýjunum
júní 27, 2008 kl. 12:52 pm
Glæsilegt – alltaf gaman að sjá cm fækka eins og kílóunum
júní 27, 2008 kl. 2:52 pm
Vei vei vei…. þetta er mega góður árangur hjá þér :p
Bíð einmitt spennt eftir að geta tekið cm mælingar eftir hva…. 3 vikur eða svo….
ssmússs