Sarpur fyrir júlí, 2008

Vigtun (Jolly)

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júlí 31, 2008 by Jolly

Já eins og ég  sagði að ég gaf mér frjálsan taum um síðustu helgi og leyfði mér ýmislegt sem ég hef ekki verið að leyfa mér en það verður byð í að ég geri þetta aftur finn alveg hvað maður er lengi að koma upp vörnunum eftir frjálsa  helgi þá er þessi löngun í manni í nokkra  daga en ég er búin að æfa eins og bavíani núna í vikunni farið í langa hjólatúra ásamt ræktinni og alltaf að þyngja meir og meir því sem ég er að lyfta í ræktinni ;) Á von á góðri tölu bara næst en það fóru 800 grömm af þessa vikuna og því aðeins 2,2 kg eftirí 15 kg múrinn D gaman gaman en ég ætla að vera komin yfir hann 15.ágúst ;)

Eigið góðan dag

Jolly )

33,5cm á 1 mánuði (Jolly)

Posted in Átak on júlí 27, 2008 by Jolly

Hæhæ jæja í dag var ákkúrat mánuður síðan síðasta ummálsmæling var svo ég mældi mig hátt og lágt áðan;) Ég er bara sátt við útkomuna :D en hún hljóða svona:

kálfar -1 af hvorum= -2cm/frá upphafi=-4cm

ofan hné-1og-0,5=-1,5cm/frá uph=-6cm

mið læri -3 og -1,5cm=-4,5cm/frá uph=-10 cm

efst læri -2,5 og-2=-4,5cm/frá uph-8,5cm

rass/mjaðmir=-4,5cm/frá uph-9cm

nafli=-4cm/frá uph-13cm

mitti=-5cm/frá uph-9cm

undir brjóstum=-5cm/frá uph-9cm

brjóst=-1cm(ca 5mældi ekki nákv.strax)

háls=-1cm/frá uph -1,5cm

úlliðir-3mm og -2mm=-0,5cm/frá uph-1,5cm 

Í gær leyfði ég mér meira en ég hef  gert áður en ég fékk mér lítinn bragðaref og hafði svoldið frjálslegan dag en það verður nú ekkert svol.. um hverja helgi en allt í lagi annað slagið;)

Bestu kveðjur Jolly

E.s. Héri ég skil þig með ruglinginn á okkur verðum að skoða þetta;)

Vigtu 5 & 6 (Jelly)

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júlí 24, 2008 by Miss lady


Ég stein gleymdi að blogga síðasta fimmtud. Var alltaf á leiðinni en svo datt það upp fyrir svo ég skelli bara inn 2 vigtunum saman.

Annars gekk all svakalega vel fyrir vigtun 5. Var frekar hissa á því en þá missti ég hvorti meira né minna en 2.1 kg var verulega ánægð með það allt saman. Enda alveg að dretta í – 7 kg. Verð ekkert smá ánægð þegar ég verð búin að ná þessum rúmum 15 kg sem ég var búin að gera. Þá fyrst finnst mér ég vera að farin að missa kg.

Þessa vikuna var ég alls ekki nógu dugleg að borða grænmeti og ávexti og það sést greynilega á vigtinni. En get svo sem sagt að góðu fréttirnar eru að ég þyngdist ekki. Missti alveg 100 gr. Svo ég er mjög svo ánægð með það allt saman.

Nú er einnig komin mánuður síðan ég byrjaði að taka mælinguna hjá mér eða var reyndar 16 og eru farnir 16 cm, hélt það yrði meira en 16 cm eru þó 16 cm ekki satt. Finn það líka á brjóstahöldurunum mínum að þetta er að minka. Er líka löngu komi í vandræði með haldara og var ég því að spá í að kaupa mér 2 um mánaðarmótin, held ég eigi það alveg skilið sko. Maginn er líka búinn að minka um 3 cm. Ótrúlegt hvað þessir 3 cm hafa mikið að segja. Hjá mér er það brjóstin og maginn sem ég vil sjá minka ágætlega. Enda er ég í DD-F í brjóstahaldara og finnst það ekki gaman, allt of eftitt að kaupa mér haldara í þessum stærðum.

Fékk hrós í vinnini í gær. Ein sem er búin að vera í 2 vikna sumarfríi spurði mig í gær hvað ég væri búin að missa mikið og ég sagði 7 við hana, þá sagði hún einmitt að það sæist á mér. Ohh svo gaman að fá svona hrós. Reyndar sé ég þð líka alveg á myndum sko. Ég verð alltaf svo þrútin eitthvað í framan, eins finnst mér undirhakan hafa farið snarminkandi.

í gær var ég ekki búin að fara í 2 daga í ræktina svo að ég byrjaði á því að taka brennsluna í 20 min, fór svo í að lyfta hendur. Ákvað nú að prufa að þyngja í baki, brjóst, upptog og niðurtog og svei mér þá, var komin með strengi í brjóstvöðva og smá í hendurnar. Er frekar langt síðan ég var með stengi. Var alltaf með strengi þegar ég var í þessu 2006 en hef greynilega náð mér í aðeins meiri vöðva en þá, enda var ég ekki byrjuð að vinna á þessum tíma.

Fór svo að hlaupa í dag og ég get sko alveg sagt það að ég var ekki með mikla orku eitthvað. Var meira að segja að spá í að svindla og sleppa síðasta hápúnktinum og fara bara strax niður en eins og oft áður var ég að þræta við sjálfa mig, endaði þetta svo með því að allt í einu var ég farin að hlaupa. Alltaf gaman að vera ég þegar ég er voða löt eitthvað og annar í mér svaka duglegur.

Nú á ég eftir 21 kg þar ti í feb, man ekki hvort að ég var buin að segja það en ég ætlaði að vera búin að ná af mér 28 kg áður en ég færi út að kaupa brúðakjólinn minn svo það þýðir ekkert að hætta núna. Ekki nema 27 vikur eða svo í þetta :o

Jæja, held þetta sé orðið fínt í bili.

mikið púl/lítið niður (Jolly)

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júlí 24, 2008 by Jolly

Jæja eins og ég sagði síðast þá veit maður að það er ekki viku eftir viku sem maður missir meira en kg og það kom að því núna en það fóru aðeins 600 gr sem er nú samt bara mjög flott og allt betra en að þyngjast:) þannig að nú eru eftir 3 kg slétt þar til 15 kg múrinn fellur ohh hvað ég hlakka til!

 

Ég vonast eftir að hann falli fyrir miðjan ágúst en þá eru 3 mánuðir síðan mataræðið var tekið föstum tökum en 2 mánuðir síðan ræktin var hafin:)

En það sem af er:

síðan mataræðið eru 71 dagur=10 vikur= 2mán og 1 vika(15.maí)

Síðan líkamsræktin hóft eru 45 dagar=5vikur og 3 dagar(16.júní)

Síðan líkaminn fyrir lífið byrjað eru 25 dagar=3vikur og 3 dagar(30.júní)

Ég fer einnig svoldið út að hjóla og einnig í gönguferðir, þrátt fyrir lítinn létting þessa vikuna er ég  búin að vera  að hreyfa mig örugglega meira í henni en nokkurtíman en það er kannski að hluta orsakavaldurinn;)

Jæja ekki lengri í bili

Jolly

Vigtun (jolly)

Posted in vigtun, Átak on júlí 17, 2008 by Jolly

Lífið er frábært er enn á fulluskriði niður þessa vikur fóru sammtals 1,3kg get ekki verið annað en ánægð með það. Nú eru í heildina farin -11.4kg og þegar ég var að búa til tikkerinn brá mér hálfpartinn að sjá að það eru bara 3.6 kg eftir í -15kg þar sem ég var að vonast eftir að vera búin með 10 um mánaðarmótin:O en þetta er bara frábært meðan er, ég veit það mun ekki renna endalaust svona í hverri vikur svo maður má ekki vera ofgóðu vanur ;)

 Ég á samt eftir að ná mun meira en 15 kg af mér mér finnst bara fínt að  telja á 5kg byrjaði á 10 svo 15 svo fer ég í 20 og svo frv.. styttir byðina, maður verður að nota sálfræði á sig ;)

Jæja ekki meira  í dag á eftir að skella mér að hlaupa

Bestu kveðjur

Jolly

10kg múrinn féll (Jolly)

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júlí 16, 2008 by Jolly

Átti alltaf eftir að skrifa fyrir vigtunina síðasta fimmtudag :) reyndar beið ég fyrst eftir að Jelly myndi ljúka sér af hér en svo dróst það á langinn. Það var s.s. ótrúlega flott vika síðastast á fimmtudaginn  voru farin 10,1 kg eða 1.9 kg á einni viku:D Ég er búin að vera dugleg í ræktinni og mataræðinu finn hvað þolið er  að aukast allavega er ég fór að hlaupa í gær jók ég  allt um hálfan á hlaupabrettinu og var ekki dauð eftir þetta eins og hefur oft verið.

Það stefnir  í aðra  góða viku held  ég  bara í morgun varð ég mjög glöð en þá voru farin 11.2 kg en vigtunardagurinn er náttúrlega á morgun

Bestu kveðjur

Jolly

Vigtun 4 (jelly)

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júlí 11, 2008 by Miss lady

Æææ, ég stein gleymdi að blogga um vigtunardaginn. En ég s.s var í vigtun á mánudaginn og hún kom bara ljómandi vel út. Það fóru 1.1 kg. Ekkert smá fegin miða við að ég fór upp á við síðast, var bara frekar fúl yfir því. Þannig að það eru farin 4.8 kg. Hefði viljað fara yfir 5 en mar verður nú að vera ángæður með það sem er komið eða farið í bili :p

Maður er búin að vera að reyna að standa sig vel í ræktinni. Ég og Jolly erum s,s að fara eftir LFL prógraminu, búnir 11 dagar eða svo. Minnir að þeir seu 84. Verður gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman. Þýðir ekkert annað en að standa sig vel ef mar ætlar að vera með sem minst af auka kg við altarið og eftir það :) Svo fer málbandið bráðum aftur á loft eða 16 júlí, verður gaman að sjá hvort að það sé eitthvað búið að breytast í þeim efnum

Þar til næs
Gangi ykkur vel í átakinu ykkar og góða helgi
Jelly

Vigtunardagur Jolly

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on júlí 3, 2008 by Jolly

Thank god 4 drafts hihi jibbý ég s.s var byrjuð á annari útaf ég hélt að færslan væri glötuð en mundi svo eftir drafts hjúkk

Jæja þá er vigtunardagur hjá mér það kvaddi mig aftur -1 kg:D þannig að í heildina eru farin -8,2kg aðeins 1,8 kg eftirí -10 kg þetta er allt að mjakast.

 

Ég er búin að vera dugleg í hreyfingunni á mánudaginn var  byrjuðum við Jelly á líkama fyrir lífið prógramminu í ræktinni http://likami.eas.is/?c=webpage&id=176 s.s. æfinga hlutanum.Fram að því höfum við verið bara að lyfta og sprikla að vekja líkamann og vöðvana. Ég hef einnig verið að fara út og hjóla og svona líka.

Ég hef leyft mér nokkrum sinnum e-ð extra í mataræðinu í vikunni fékk smá bland í poka  um helgina og lítinn ís í brauðformi á þriðjudaginn og borðaði á MCdonalds já og svo fékk ég  mér eina sneið af skúffuköku sem ég bakaði í gær hún var ótrúlega flott svo ég ákvað að leyfa mér að smakka smá og stoppaði eftir það, ákvað að baka fyrir krakkana og ef hún hefði ekki lyft sér svona geðveikt mikið og verið svona ótrúlega flott hefði ég  látið hana vera en auðvitað þurfti að koma svona rosalega flott freysting reyndar var mjög lítið af sykri í henni átti ekki meiri sykur, kannski það sér  trikkið.

Ég ætla að vera helst án alls extra í þessari viku og sjá hverju það skilar  næsta fimmtudag ;) en ég tel að allt sé gott í hófi og meðan maður heldur sig við lítil extra dettur ekki í gleypigang  er maður í góðum málum, allavega þegar maður hefur náð settu marki í þyngd þá kann maður sér held ég  frekar hóf með að leyfa sér einstaka hluti á leiðinni og gefst síður upp og dettur í sukk og svínarí.

Jæja þarf að koma mér í hlaupagallann

Bestu kveðjur Jolly :)