Vigtunardagur Jolly
Thank god 4 drafts hihi jibbý ég s.s var byrjuð á annari útaf ég hélt að færslan væri glötuð en mundi svo eftir drafts hjúkk
Jæja þá er vigtunardagur hjá mér það kvaddi mig aftur -1 kg:D þannig að í heildina eru farin -8,2kg aðeins 1,8 kg eftirí -10 kg þetta er allt að mjakast.
Ég er búin að vera dugleg í hreyfingunni á mánudaginn var byrjuðum við Jelly á líkama fyrir lífið prógramminu í ræktinni http://likami.eas.is/?c=webpage&id=176 s.s. æfinga hlutanum.Fram að því höfum við verið bara að lyfta og sprikla að vekja líkamann og vöðvana. Ég hef einnig verið að fara út og hjóla og svona líka.
Ég hef leyft mér nokkrum sinnum e-ð extra í mataræðinu í vikunni fékk smá bland í poka um helgina og lítinn ís í brauðformi á þriðjudaginn og borðaði á MCdonalds já og svo fékk ég mér eina sneið af skúffuköku sem ég bakaði í gær hún var ótrúlega flott svo ég ákvað að leyfa mér að smakka smá og stoppaði eftir það, ákvað að baka fyrir krakkana og ef hún hefði ekki lyft sér svona geðveikt mikið og verið svona ótrúlega flott hefði ég látið hana vera en auðvitað þurfti að koma svona rosalega flott freysting reyndar var mjög lítið af sykri í henni átti ekki meiri sykur, kannski það sér trikkið.
Ég ætla að vera helst án alls extra í þessari viku og sjá hverju það skilar næsta fimmtudag
en ég tel að allt sé gott í hófi og meðan maður heldur sig við lítil extra dettur ekki í gleypigang er maður í góðum málum, allavega þegar maður hefur náð settu marki í þyngd þá kann maður sér held ég frekar hóf með að leyfa sér einstaka hluti á leiðinni og gefst síður upp og dettur í sukk og svínarí.
Jæja þarf að koma mér í hlaupagallann
Bestu kveðjur Jolly
júlí 4, 2008 kl. 3:30 pm
ohhh geggjað hjá þér. Alltaf gaman þegar mar nær kg en ekki “bara grömm….. Við erum sko mega góðar í púlinu, enda ætlum við að vera flottastar en ekki hvað….. Spáðu í því… ekki nema 1.8 kg í TÍU KG LÉTTINGU geeeegjað
:D