Vigtun 4 (jelly)
Æææ, ég stein gleymdi að blogga um vigtunardaginn. En ég s.s var í vigtun á mánudaginn og hún kom bara ljómandi vel út. Það fóru 1.1 kg. Ekkert smá fegin miða við að ég fór upp á við síðast, var bara frekar fúl yfir því. Þannig að það eru farin 4.8 kg. Hefði viljað fara yfir 5 en mar verður nú að vera ángæður með það sem er komið eða farið í bili :p
Maður er búin að vera að reyna að standa sig vel í ræktinni. Ég og Jolly erum s,s að fara eftir LFL prógraminu, búnir 11 dagar eða svo. Minnir að þeir seu 84. Verður gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman. Þýðir ekkert annað en að standa sig vel ef mar ætlar að vera með sem minst af auka kg við altarið og eftir það
Svo fer málbandið bráðum aftur á loft eða 16 júlí, verður gaman að sjá hvort að það sé eitthvað búið að breytast í þeim efnum
Þar til næs
Gangi ykkur vel í átakinu ykkar og góða helgi
Jelly
júlí 13, 2008 kl. 8:51 pm
Flottur árangur hjá þér!