Sarpur fyrir ágúst, 2008

Fyrsta skipti plús

Posted in vigtun, Átak on ágúst 31, 2008 by Jolly

Já og örugglega eini staðurinn sem maður vill ekki vera í plús :p Ég fór s.s. á djammið helgina áður og bætti á mig (vökvasöfnun) meira en 3 kg vildi ekki leggja nákvæma tölu á minnið á fimmtudaginn 28. þegar það var vigtunardagur átti ég enn 900 grömm eftir til að vera komin í sömu þyngd og vikunni áður en þau voru farin núna um helgina;)

Held maður hugsi sig 2x um áður en maður fær sér í glas aftur eða í glös alveg viku tafir hjá manni á þyngdamissir:o en hlakka til næsta fimmtudags;)

Stutt í dag

Jolly

Gengur bara vel (Jolly)

Posted in vigtun, Átak on ágúst 21, 2008 by Jolly

Eftir smá hökkt síðustu vikur þá er allt farið í súper gang aftur, það er eins og eftir nokkrar súper vikur komi alltaf smá rólegar á milli ;) en þessa viku fóru 1.2 kg alveg eins og í síðustu viku var reyndar búin að ná því í gær. ;) Þannig að í heildina eru farin 15.2 kg og allir farnir að taka eftir muni á manni ;)

 

Finnst alveg ótrúlegt að hugsa að eftir aðeins 4.8 kg verða farin 20 kg, hlakka bara til:D

Hef þetta stutt að þessu sinni

Jolly

Takk fyrir kommentin ;)

ops allt of langt síðan (Jellý)

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on ágúst 15, 2008 by Miss lady


Ég er alls ekki búin að vera að standa mig í þessu bloggi hjá mér. Verð að fara að gera eitthvað í því samt. Átakið gengur ágætlega held ég bara. Fór reyndar á djammið mánudeginum eftir versló og var ekkert að vigta mig á fimmtudeginum á eftir, en stóð samt í stað en eins og staðan er núna þá vanta mig bara 800 gr í 10 kg múrinn, ekkert smá gaman það.. Er reyndar ekki búin að vera alveg í 100% DDV heldur púla í ræktinni og svona spá hvað ég er að setja ofna í mig. Vona að ég nái allavega þessum 800 gr næsta fimmtudag. Mér finnst vera svo stór áfangi að ná 10 kg.

Um helgina á svo að vera mæling líka, en ég er að spá í að sjá hvernig heilsan verður hjá mér. Getur verið að ég fresti henni þar til ég er orðin betri. En við skulum bara sjá síðar.

Er því miður orðin veik núna en vona að það muni ekki standa lengi yfir og ég verði í góðum málum á fimmtud, er að reyna að vera dugleg að drekka vatn og svona. Nú er bara að korssa puttum og vona það besta.

Voandi gengur ykkur vel :D

Vigtun (Jolly)

Posted in Hreyfing, vigtun, Átak on ágúst 14, 2008 by Jolly

Bloggaði ekkert í síðustu viku en það var annasöm vika ég stóð í stað síðasta fimmtudag enda voru svona aðeins öðruvísi dagar í fjölskyldunni þó svo ég  tók ræktina  samviskusamlega ;) en í morgun voru það 1.2 kg sem kvöddu þannig ég er  búin að kveðja 14 kg þvílíkt glöð með það núna bara drífa sig í að ná 15 kg  múrnum svo ég geti hafið 20 kg múrsferðalagið :) nú verður bara harkan sex að ná kílóinu af sem fyrst

Í gær fór  ég í smá fatatékk sem setti stórt bros á mig :D gallapilsið mitt sem ég kom ekki uppum rassinn á mér var mátað og ég kom því upp og gat meira segja hneppt og rennt get s.s. farið að nota það fljótlega en ætla ekki að nota það alveg strax útaf maginn krumpast aðeins út eða þið fattið ekki fallegt að hafa það sleikt og magann að bungast út:p úlpur tvær voru mátaðar sem ég gat ekki rennt lengur en gat það núna já bara bjartir tímar  framundan. 

 Ég sá mynd af mér í vikunni og bara omg hvernig gat ég látið þetta gerast að fitna svona ótrúlegt að maður geti sofnað svona yfir sjálfum sér en ALDREI aftur nei takk nú bara að klára þetta verkefni og halda því áfram um ókomin ár!

Jæja nóg í bili

Jolly