Vigtun (Jolly)

Bloggaði ekkert í síðustu viku en það var annasöm vika ég stóð í stað síðasta fimmtudag enda voru svona aðeins öðruvísi dagar í fjölskyldunni þó svo ég  tók ræktina  samviskusamlega ;) en í morgun voru það 1.2 kg sem kvöddu þannig ég er  búin að kveðja 14 kg þvílíkt glöð með það núna bara drífa sig í að ná 15 kg  múrnum svo ég geti hafið 20 kg múrsferðalagið :) nú verður bara harkan sex að ná kílóinu af sem fyrst

Í gær fór  ég í smá fatatékk sem setti stórt bros á mig :D gallapilsið mitt sem ég kom ekki uppum rassinn á mér var mátað og ég kom því upp og gat meira segja hneppt og rennt get s.s. farið að nota það fljótlega en ætla ekki að nota það alveg strax útaf maginn krumpast aðeins út eða þið fattið ekki fallegt að hafa það sleikt og magann að bungast út:p úlpur tvær voru mátaðar sem ég gat ekki rennt lengur en gat það núna já bara bjartir tímar  framundan. 

 Ég sá mynd af mér í vikunni og bara omg hvernig gat ég látið þetta gerast að fitna svona ótrúlegt að maður geti sofnað svona yfir sjálfum sér en ALDREI aftur nei takk nú bara að klára þetta verkefni og halda því áfram um ókomin ár!

Jæja nóg í bili

Jolly

Ein ummæli to “Vigtun (Jolly)”

  1. Vá ég held að við séum bara á rosalega svipuðu róli ég gleymi alltaf að kvitta þannig að ég ætla að gera það núna áður en ég gleymi því híhí. Það er vigtun hjá mér á morgun og ég er einmitt að vona það að 14 kg múrinn falli en það kemur í ljós gott að hafa einhverja svona í sömu sporum og já vá hvað er bæði sorglegt að sjá bara nokkra mánaða myndir af sér en á móti mjög ánægjulegt að kíkja í fataskápinn :) Gangi þér áfram svona vel og ykkur báðum þið eruð snillingar :)

Skildu eftir svar