ops allt of langt síðan (Jellý)


Ég er alls ekki búin að vera að standa mig í þessu bloggi hjá mér. Verð að fara að gera eitthvað í því samt. Átakið gengur ágætlega held ég bara. Fór reyndar á djammið mánudeginum eftir versló og var ekkert að vigta mig á fimmtudeginum á eftir, en stóð samt í stað en eins og staðan er núna þá vanta mig bara 800 gr í 10 kg múrinn, ekkert smá gaman það.. Er reyndar ekki búin að vera alveg í 100% DDV heldur púla í ræktinni og svona spá hvað ég er að setja ofna í mig. Vona að ég nái allavega þessum 800 gr næsta fimmtudag. Mér finnst vera svo stór áfangi að ná 10 kg.

Um helgina á svo að vera mæling líka, en ég er að spá í að sjá hvernig heilsan verður hjá mér. Getur verið að ég fresti henni þar til ég er orðin betri. En við skulum bara sjá síðar.

Er því miður orðin veik núna en vona að það muni ekki standa lengi yfir og ég verði í góðum málum á fimmtud, er að reyna að vera dugleg að drekka vatn og svona. Nú er bara að korssa puttum og vona það besta.

Voandi gengur ykkur vel :D

Ein ummæli to “ops allt of langt síðan (Jellý)”

  1. jibbý loksins blogg frá þér
    Já það er stór áfangi að ná 10 kg þú nærð honum fyrir fimmtudaginn hef fulla trú á þér, vona að þú komist í ræktina á mánudaginn

    Kossar og knús

Skildu eftir svar