20 kíló farin!

Ákvað að skrifa smá í tilefnidagsins en í morgun var ég ákkúrat búin að missa 20 kg  vei:D

Úff er varla að trúa þessari tölu og að maður hafi virkilega verið 20 KG ÞYNGRI en núna og að maður hafi virkilega gert sér þetta og sofnað svona yfir sjálfum sér alveg ótrúlegt ennnnnnnnnn satt! Ég er reyndar búin að ákveða að breyta vigtunardögunum mínum í föstudaga þar sem það er svo klikkað að gera hjá mér á fimmtudögum að hann hentar mér ekki lengur.

Mér finnst alveg möst að maður eigi lítil föt til að komast í og það í mörgum stærðum, það eru svo miklir sigrar þegar maður byrjar að geta notað hverja flík :) Ég tók í gamni málbandið í vikunni og setti það í þá stellingu þar sem það var í upphafi á nokkum stöðum og bara vá…….

Jæja kveð að sinni

Jolly

4 svör to “20 kíló farin!”

  1. ohhh ég er svooooo stolt af þér kiss kiss og knús
    Þetta verður ekkert smá gaman þegar við erum búnar með þetta allt saman. vei vei vei

    u go girl

  2. Jebb verðum þvílíkar skutlur næsta sumar! Þá verður tekin strandarferð eða lónið ;) Takk elskan

  3. Vá til hamingju með árangurinn :) Ég á einmitt 2,5 kg upp á 20 kg og ég var í göngutúr með litla skvísu með mé sem er 20 kg og sú stutta varð soltið þreytt í lokin þannig ð ég þurfti að bera hana síðasta spölinn og vá ég var að andast og spáðu í því að maður var svona þungur. Gangi þér áfram vel og þér líka Miss Lady :)

  4. Til hamingju með árangurinn! :)

Skildu eftir svar