Smá færsla (lady)
Ætla að skella inn einni færslu svona til tilbreytingar.
Það er bara allt ágætt að frétta á þessu heimili. Er ekki búin að vera dugleg í ræktinni en fer að bæta úr því. Ætla að kíkja á morgun og kaupa kort þar sem það er orðið útrunnið hjá mér. Maður hefur alltaf gott á því að púla aðeins, ekki satt.
Vigtin fer niður stundum rólega en önnur skipti. Nú eru farin hjá mér 16 kg, er bara nokkuð ánægð með það. Ætla allavega að reyna að vera búin að ná 20 kg fyrir jólin, verð mjög sátt við það. Er í rauninni bara búin að vera að passa hvað ég borða og lítið í einu. Er að fara á djammið á morgun líka, svo maður á sjálfsagt von á því að vigtin fari eitthvað upp hjá manni
Þar til næst
Hafið það gott um helgina
október 30, 2008 kl. 7:55 pm
ú glæsó!
Til hamingju með 16 kg allt að gerast=)
Já gott þú ert að koma þér í hreyfigírinn;)
nóvember 2, 2008 kl. 8:47 pm
til lukku með léttinginn!!