Ákvað að skrifa smá í tilefnidagsins en í morgun var ég ákkúrat búin að missa 20 kg vei:D
Úff er varla að trúa þessari tölu og að maður hafi virkilega verið 20 KG ÞYNGRI en núna og að maður hafi virkilega gert sér þetta og sofnað svona yfir sjálfum sér alveg ótrúlegt ennnnnnnnnn satt! Ég er reyndar búin að ákveða að breyta vigtunardögunum mínum í föstudaga þar sem það er svo klikkað að gera hjá mér á fimmtudögum að hann hentar mér ekki lengur.
Mér finnst alveg möst að maður eigi lítil föt til að komast í og það í mörgum stærðum, það eru svo miklir sigrar þegar maður byrjar að geta notað hverja flík
Ég tók í gamni málbandið í vikunni og setti það í þá stellingu þar sem það var í upphafi á nokkum stöðum og bara vá…….
Jæja kveð að sinni
Jolly




