Miss Lady
Tja, það er spurning um að skella nokkrum orðum hér inn.
Annars er ég að verða 29 ára gömul og á 2 yndisleg börn sem ég sé ekki sólina fyrir. Einn strák og eina stelpu. Ekki að plana fl börn í bili en mér hefur verið tilkynnt það að ég eigi eftir að eignast 2 í viðbót. En við sjáum bara til með það.
Mér hefur alltaf fundist ég vera of þung en þegar ég horfi til baka að þá hef ég verið með þetta á heilanum í allt of langan tíma. Ég fór ekki að fara yfir kjörþyngdina mína fyrir en endan ‘99 eða byrjun ‘00. Það er mannskemmandi held ég að vera alltaf svo áhyggjufullur um þyngdina á sér. En þetta er kanski eitthvað sem maður getur ekki gert mikið í.
Þegar ég ákvað hingað og ekki lengra var ég komin í 42.5 kg í ofþyngd eða 112.7 kg samtals. Ég fékk nógu mikið sjokk þegar ég fór fyrst í 3ja stafa tölu en þegar maður er komin rúmum 12 kg meira en það er það hræðilegt. Ég byrjaði á því að skella mér í ræktina en var samt ekkert að spá í að hætta að borða vitlaust og tala nú ekki um allt kókið sem ég drakk líka. Við kallinn fórum létt með það að drekka 4L á dag. En þar sem að mér finnst diet kók virkilega vond ákvað ég að hætta bara alveg að drekka kók og drekk ég núna bara 7 up free og Sprit Z. Reyndar annað slagið venjuleg appelsín þrátt fyrir að það má ekki í DDV. Ég hélt að ég myndi aldrei geta hætt að drekka kók en annað kom greynilega í ljós. Í dag þegar ég hef smakkað kók er það bara VIÐBJÓÐSLEGA VONT.
Mitt takmark er að koma mér í 65-68 kg. Þar sem að ég er 172 cm á hæð. Finnst fínt að eiga örfá kg sem ég gæti farið upp á við. Ég byrjaði á DDV í byrjun júlí’06 en gerði þau skelfilegu mistök að taka pásu yfir jólin og fékk því allt í hausinn aftur, var samt búin að missa 15 kg eða svo.
En nú er ég komin aftur, 2 árum síðar og þýðir ekkert annað en að klára þetta núna þar sem það er gifring 2009. Ég er 111.7 kg þegar ég ákvað að skella mér aftur í þetta. Vigtunardagar verða hjá mér á mánudögum.
Nú er bara að krossa putta og vona það allra besta
takk fyrir mig